VALD
VALD stendur fyrir mig, Völu Dögg en mér finnst þetta líka sterkt orð sem segir sitt. VALD er að hafa áhrif, ná athygli og koma hlutum í framkvæmd.
Ég vil hjálpa fyrirtækjum að gera meira úr því sem þau eru að bjóða upp á með markvissri og skapandi nálgun á samfélagsmiðlum.
Þetta þarf oft ekki að vera flókið, góðar hugmyndir, gott efni og skýr skilaboð gera ótrúlega mikið. Ég er menntuð sem sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu og með BA í miðlun og almannatengslum.
VALD er fyrir fyrirtæki sem vilja sjást, ná til fólks og byggja upp sterkara vörumerki.